Stefnumótunarnefnd fundar á Héraði
Í gær, miðvikudaginn 7. október, heimsótti Nefnd um stefnumótun landshlutaverkefna í skógrækt Egilsstaði og nágrenni. Nefndin starfar á vegum sjávar- og landbúnaðarráðuneytisins og heimsækir nú öll verkefnin til að kynna sér aðstæður og starfsemi þeirra.
Nefndin fundaði með fulltrúum skógarbænda, starfsmönnum Héraðs- og Austurlandsskóga og Skógræktar ríkisins. Að fundi loknum var farið í skoðunarferð um Hérað og var m.a. komið við á Buðlungavöllum, í Mörkinni á Hallormsstað og við kyndistöðina sem nú rýs á Hallormsstað. Tæki og tól voru skoðuð á Hallormsstað, rætt var um viðarframleiðslu o.fl.
Mynd: Hlynur Sigurðsson, Héraðs- og Austurlandsskógum


