Endurnýjuð vefsíða IUFRO
IUFRO - International Union of Forest Research Organizations - hefur endurnýjað vefsíðu sína. Síðan inniheldur margvíslegar áhugaverðar upplýsingar tengdar skógræktarrannsóknum um allan heim. Þar er að finna fréttabréf IUFRO sem auðvelt að að nálgast.
Efst á baugi er heimsráðstefna IUFRO sem haldin verður í Brisbane, Ástralíu 8. til 13. ágúst nk. Slíkir viðburðir hafa verið haldnir síðan 1893.
Slóðin er: www.iufro.org

