Skógrækt ríkisins á Norðurlandi og Norðurlandsskógar flytja
Skógrækt ríkisins á Norðurlandi og Norðurlandsskógar hafa flutt skrifstofuaðstöðu sína úr Búgarði, Óseyri 2 í Gömlu Gróðrarstöðina sem er nær 100 ára gamalt hús í innbæ Akureyrar.
Gamla gróðrarstöðin er sögufrægt hús og ekki síður garðurinn sem er í brekkunni ofan við húsið.
Nýja heimilisfangið er:
Gamla Gróðrarstöðin v/Eyjafjarðarbraut
600 Akureyri
Norðurlandsskógar hafa endurnýjað heimasíðu sína. Kíktu á hana og frekari fréttir um Gömlu Gróðrarstöðina með því að smella hér.

