Beint í leiðarkerfi vefsins.
Hér má sjá myndband frá Skógardeginum mikla sem haldinn var í Hallormsstaðaskógi 25. júní sl.
Skógardagurinn mikli var haldinn hátíðlegur í 7. sinn í Mörkinni í Hallormsstaðaskógi um helgina.
Nú styttist í árlega skógarhátíð skógræktaraðila á Austurlandi sem haldinn verður í Hallormsstaðaskógi 25. júní.
Í tilefni af alþjóðlegu ári skóga árið 2011 hafa Skógræktarfélag Íslands og Arion banki gefið út kortið ,,Rjóður í kynnum“ en í því er að finna upplýsingar um 50 áhugaverða útivistarskóga um land allt.
Náttúrufræðingurinn Helgi Hallgrímsson telur þá sem harðast hafa barist gegn nýjum trjátegundum á Íslandi vera meðal þeirra sem hafi skaðað íslenska náttúruvernd.
Út er komið Ársrit Skógræktar ríkisins fyrir árið 2010 þar sem m.a. er fjallað um viðarfræði, kolefnisbingdingu, skaðvalda, grenndarskóga í kennaranámi og öskufall á Suðurlandi.
Laugardaginn 4. júní var skrifað undir grenndarskógasamning um Björnslund í Norðlingaholti. Aðilar að samningnum eru skólar á svæðinu, foreldrafélög, íbúasamtök, Skógrækt ríkisins, Menntavísindasvið HÍ og Reykjavíkurborg.
Í síðustu viku gróðursettu nemendur í Ártúnsskóla níu rauðgreniplöntur í grenndarskógi sínum í Elliðaárdalnum sem vaxnar eru af fræi úr könglum Oslóartrésins á Austurvelli árið 2007.
Í vikunni sem leið fengu fjórir samstarfsaðilar styrk úr Orkusjóði til að kanna hagkvæmni þess að kynda byggðina í Grímsey með viðarkurli.
SNS (Samstarf um norrænar skógarrannsóknir) hefur nú opnað nýja vefsíðu.