Beint í leiðarkerfi vefsins.
Skógrækt ríkisins og Skógræktarfélag Íslands boða á morgun til kynningar á umsögn um lúpínuskýrslu Náttúrufræðistofnunar Íslands og Landgræðslu ríkisins.
Mánudaginn 21. júní heimsótti Svandís Svavarsdóttir, umhverfisráðherra, Rannsóknastöð skógræktar á Mógilsá þar sem hún fékk m.a. að spreyta sig á trjámælingum.
Föstudaginn 25. júní boðar Skógræktarfélag Reykjavíkur til ráðstefnu í Heiðmörk. Daginn eftir verður svo haldinn fjölskyldudagur þar sem verður m.a.a boðið upp á þrautabraut, tréskurð og skógarleiki.
Skógarhlaupið og Íslandsmeistaramótinu í skógarhöggi eru meðal þess sem boðið verður upp á í Hallormsstaðaskógi á Skógardaginn mikla, laugardaginn 26. júní nk.
Í tilefni þess að Gunnar Freysteinsson, skógfræðingur, hefði orðið fertugur í ár boða Skógfræðingafélag Íslands, vinir og vandamenn til Gunnarshátíðar í Haukadal sunnudaginn 27. júní.
Skógrækt ríkisins óskar eftir tilboðum í 300 m3 af timbri sem staðsett er í Skorradal.
Nú í sumar býur Menntavísindasvið Háskóla Íslands upp á sumarnámskeiðið Útinám og leikir í skógi og fer það að öllu leyti fram í grenndarskógi skólans í Öskjuhlíð.
Aska féll á skóga í Þórsmörk og Goðalandi síðustu daga eldgossins í Eyjafjallajökli en þeir koma vel undan öskunni.
Opnuð hefur verið ný kortavefsjá á heimasíðu Landbúnaðarháskóla Íslands þar sem m.a. má finna upplýsingar um ræktað skóglendi á Íslandi.