Samvinna milli deilda
Yfir vetrartímann þegar starfsmannahald er í lámarki, verður vinna í skógi oft ódrjúg. Deildir Skógræktar ríkisinsá Vestur – og Suðurlandi ákváðu því að hafa samvinnu um starfmannaskipti. Í febrúar fór starfsmaður Sr á Vesturlandi í Þjórsárdal og vann við grisjun í þrjár vikur. Vikuna 10. – 14. mars komu svo tveir starfsmenn frá Suðurlandi og unnu við grisjun í Skorradal. Grisjað var í rauðgrenireit á Stálpastöðum. Gróðursett var í reitinn árið 1958 og var meðalhæð trjánna um 10 metrar. Vinnan gekk afar vel, ekki síst að skoða aðstæður á öðrum svæðum og spjalla um fagleg mál.

.jpeg)
