Skógrækt ríkisins óskar eftir ráða kynningarstjóra
Skógrækt ríkisins óskar eftir ráða kynningarstjóra til starfa á aðalskrifstofu stofnuninnar á Egilsstöðum.
Skógrækt ríkisins er þekkingar-, þróunar-og þjónustuaðili sem vinnur með og fyrir stjórnvöld, almenning og aðra hagsmunaaðila að rannsóknum, ráðgjöf og þekkingarmiðlun á sviði skógræktar. Þá er stofnunin í forsvari fyrir Íslands hönd í erlendu samstarfi á sviði skógræktar.
Ábyrgð og verksvið:
- Umsjón með kynningarmálum, almannatengslum og vef Skógræktar ríkisins.
- Ábyrgð á að starfsemi og stefna í kynningarmálum og útgáfu samrýmist stefnu Skógræktar ríkisins.
- Kynningarstjóri vinnur verkefni sín í nánu samráði við skógræktarstjóra og yfirstjórn stofnunarinnar.
- Næsti yfirmaður kynningarstjóra er skógræktarstjóri.
Helstu verkefni eru:
- Að annast kynningarmál stofnunarinnar, ritun og ritstjórn kynningarefnis og fréttatilkynninga og dreifingu efnis.
- Umsjón og ritstjórn vefsíðu stofnunarinnar, þróun hennar og viðhald.
- Samskipti við auglýsingastofur, hönnuði og prentsmiðjur.
- Öflun og viðhald tengsla við fjölmiðla, ferðamálaiðnaðinn, menningarlífið og atvinnulífið.
- Samskipti við starfsfólk Skógræktar ríkisins og helstu samstarfsaðila skógræktargeirans á Íslandi.
Kynningarstjóri tekur jafnframt þátt í öðrum verkefnum sem heyra undir framkvæmdaráð Skógræktar ríkisins, s.s. þróun og kynningu á almennri og sérsniðinni þjónustu stofnunarinnar og verkefni tengd útgáfu, sýningum, viðburðum og annarri miðlun.
Menntun og reynsla:
- Menntun sem nýtist í starfi, svo sem háskólapróf á sviði kynningar- eða markaðsfræða, fjölmiðlunar, íslensku, tungumála eða menningartengdum greinum.
- Reynsla af kynningar- og markaðsstarfi.
- Reynsla af vefsíðugerð, vefmiðlun og útgáfumálum.
- Mikil færni í íslensku, ensku og einu Norðurlandamáli, jafnt töluðu sem rituðu máli.
- Reynsla af ritun texta.
- Reynsla af verkefnisstjórnun æskileg.
Eiginleikar:
- Mikil hæfni í mannlegum samskiptum, samstarfslipurð og þjónustulund.
- Frumkvæði og hugmyndaauðgi.
- Sjálfstæði í starfi og öguð vinnubrögð.
Launakjör eru samkvæmt kjarasamningi viðkomandi stéttarfélags og fjármálaráðherra. Um er að ræða fullt starf og þarf viðkomandi að geta hafið störf 1. maí n.k. Við ráðningar í störf er tekið mið af jafnréttisáætlun stofnunarinnar.
Umsóknarfrestur er til og með 1. mars n.k.. Umsóknir með ferilskrá, afritum prófskírteina og meðmælum/upplýsingum um meðmælendur berist aðalskrifstofu Skógræktar ríkisins Miðvangi 2-4 Egilsstöðum. Upplýsingar veitir Jón Loftsson skógræktarstjóri í síma 471-2100 og GSM 894-9530 eða á netfanginu jonlof[hjá]skogur.is.

