Landbúnaðarráðherra lofar auknum stuðningi við skógrækt
Guðni Ágústsson svaraði fyrirspurn Helgu Þorbergsdóttur þingmanns sjálfstæðisflokks um hvort ráðherra hygðist styðja frekar við skógrækt í landinu jákvætt.Hér má lesa frétt Morgunblaðsins um svar ráðherra.
Skógrækt studd enn frekar
Guðni sagðist hafa barist fyrir aukinni skógrækt í landinu og auknum fjárframlögum. "Á síðustu árum hefur landið orðið hlýrra og byggilegra, einnig dýrmætara, þetta hefur gerst hér á síðustu árum og ekki síst vegna skógræktarverkefnanna," sagði Guðni og bætti við að núverandi ríkisstjórnarflokkar hafi tekið þá ákvörðun að hefja markvissa skógrækt á Íslandi. "Stuðningur við skógrækt á sér hljómgrunn í öllum flokkum hér á Alþingi og hefur m.a. komið fram í fjárveitingu til málaflokksins á síðustu árum."
Fréttina í Morgunblaðinu má lesa HÉR, en umræður á Alþingi þann 24. janúar s.l. má finna HÉR.

