Vesturland
  • Á Mógilsá
    Á Mógilsá
    (mynd: Brynja Hrafnkelsdóttir)
  • Á Mógilsá
    Á Mógilsá
    (mynd: Brynja Hrafnkelsdóttir)
  • Eitrað á Mógilsá
    Eitrað á Mógilsá
    (mynd: Brynja Hrafnkelsdóttir)
  • Esjan séð frá Mógilsá
    Esjan séð frá Mógilsá
    (mynd: Brynja Hrafnkelsdóttir)
  • Greniskógurinn á Mógilsá
    Greniskógurinn á Mógilsá
    (mynd: Brynja Hrafnkelsdóttir)
  • Sauna á Mógilsá
    Sauna á Mógilsá
    (mynd: Brynja Hrafnkelsdóttir)
  • Skrifstofa Skógræktar ríkisins á Mógilsá
    Skrifstofa Skógræktar ríkisins á Mógilsá
    (mynd: Brynja Hrafnkelsdóttir)
  • Á Mógilsá
    Á Mógilsá
    (mynd: Edda S. Oddsdóttir)
  • Á Mógilsá
    Á Mógilsá
    (mynd: Edda S. Oddsdóttir)
  • Á Mógilsá
    Á Mógilsá
    (mynd: Edda S. Oddsdóttir)
  • Fagráð skógræktar á Mógilsá
    Fagráð skógræktar á Mógilsá
    (mynd: Edda S. Oddsdóttir)
  • Mógilsá í Kollafirði
    Mógilsá í Kollafirði
    (mynd: Edda S. Oddsdóttir)
  • Regnbogi á Mógilsá
    Regnbogi á Mógilsá
    (mynd: Edda S. Oddsdóttir)
  • Mógilsá í Kollafirði
    Mógilsá í Kollafirði
    (mynd: Halldór Sverrisson)
  • Á Mógilsá
    Á Mógilsá
    (mynd: Halldór Sverrisson)
  • Kurlað á Mógilsá
    Kurlað á Mógilsá
    (mynd: Halldór Sverrisson)
  • Skrifstofa Skógræktar ríkisins á Mógilsá
    Skrifstofa Skógræktar ríkisins á Mógilsá
    (mynd: Halldór Sverrisson)
  • Unnið í gróðurhúsi á Mógilsá
    Unnið í gróðurhúsi á Mógilsá
    (mynd: Halldór Sverrisson)

Mógilsá í Kollafirði

Í kringum Rannsóknastöð Skógræktar ríkisins á Mógilsá blandaður skógur með gönguleiðum við rætur Esjunnar.

Almennt um skóginn

Fjölmargir hafa farið um skógana í Esjuhlíðum á leiðinni á toppinn, en sjálfsagt hafa færri komið í skóginn í kringum og fyrir ofan Rannsóknastöð Skógræktar ríkisins á Mógilsá. Þar er blandaður skógur og merkt klónasafn rannsóknastöðvarinnar. Fjölmargir stígar og stíganet tengist Esjustígum.

Staðsetning og aðgengi

Mógilsá er staðsett við þjóðveg nr. 1, innst í Kollafirði.

Aðstaða og afþreying

Fjölmargir stígar liggja um skóginn, yfir læki og bakka, skógi vaxnar hlíða í alpaumgjörð Esju, eins vinsælasta útivistarsvæðis höfuðborgarinnar. Stíganetið á Mógilsá tengist Esjustígum (sjá kort hér neðar) en margir minni stígarnir eru í raun tilvalið tilbrigði við hefðbundna Esjugöngu; styttri Esjuganga í sjálfu sér.

Saga jarðarinnar

Árið 1967 var ákveðið að efla rannsóknir í þágu skógræktar á Íslandi og var Rannsóknastöð Skógræktar ríkisins á Mógilsá í Kollafirði reist fyrir þjóðargjöf frá Norðmönnum sem gefin var í tilefni af heimsókn Ólafs V. Noregskonungs til Íslands árið 1961. Það er eðlilegur þáttur í rannsóknum að prófa nýjar trjátegundir og hefur mikið af því efni endað í brekkunni fyrir ofan rannsóknastöðina. Þar er því einhver fjölbreyttasti skógur landsins og margt forvitnilegt að sjá.

Trjárækt í skóginum

Skógurinn er einna mestur í kringum Rannsóknastöð Skógræktar ríkisins á Mógilsá, en hann er í raun trjásafn með tegundum teknum víða að úr heiminum. Í skóginum eru m.a. fágætar tegundir eins og linditré, broddhlynur og risalerki, svo eitthvað sé nefnt, en flestar trjátegundir eru merkt.

Annað áhugavert í skóginum

Á Mógilsá er fjölbreytt fuglalíf á vorin og í byrjun sumars, enda koma margir flækingar við á Mógilsá. Landslag í undirhlíðum Esju er skemmtilegt, með hólum,giljum og lækjum.

Kort af skóginum

Stíganetið á Mógilsá tengist Esjustígum, eins og sjá má á kortinu. Hinir minni stígar eru í raun tilvalið tilbrigði við hefðbundna Esjugöngu; styttri Esjuganga í sjálfu sér. Hér á loftmyndinni má sjá stígakerfi í gegnum og útfrá skóginum á Mógilsá. Rauðmerktu stígarnir eru fyrirliggjandi en verið er að vinna að mörgum þeim grænmerktu.

Kort_Mogilsa

(Kortagerð: S.Í., Ragnhildur Freysteinsdóttir)

Senda grein

 
Þetta vefsvæði byggir á Eplica