-
Í Selskógi(mynd: Esther Ösp Gunnarsdóttir) -

Tjaldsvæði í Selskógi(mynd: Esther Ösp Gunnarsdóttir) -
Tjaldsvæði í Selskógi(mynd: Esther Ösp Gunnarsdóttir) -
Tjaldsvæði í Selskógi(mynd: Esther Ösp Gunnarsdóttir) -
Tjaldsvæði í Selskógi(mynd: Esther Ösp Gunnarsdóttir) -
Selskógur, séð frá norðurströnd Skorradalsvatns(mynd: Esther Ösp Gunnarsdóttir) -
Selskógur, séð frá norðurströnd Skorradalsvatns(mynd: Esther Ösp Gunnarsdóttir)
Selskógur
Skemmtileg tjaldstæði í birkikjarri.
Yfirlit
Almennt um skóginn
Skemmtileg tjaldstæði í birkikjarri. Ganga má víða um skógarvegi. Barrtré ríkjandi, rauð- og sitkagreni.
Staðsetning og aðgengi
Selskógur er spilda úr landi Indriðastaða, sunnan við Skorradalsvatn. Ef komið er yfir Dragháls úr Svínadal má fljótt sjá Selskóg í Skorradal á vinstri hönd.
Aðstaða og afþreying
Í skóginum er tjaldsvæði í umsjón Indriðastaða í kjarri vöxnu landi. Allt um kring er ýmist kjarr eða gróðursettur skógur og hægt er að ganga um skóginn eftir þjónustuslóðum er um hann liggja.
Saga skógarins
Skógrækt ríkisins eignaðist Selskóg árið 1959 og var þar þá gisið birkikjarr. Á næstu áratugum var gróðursett í meirihluta landspildunnar, sem er 44 ha að flatarmáli. Á meðan hefur birkikjarr þéttst og breiðst út á nærliggjandi svæðum.
Trjárækt í skóginum
Mest var gróðursett af rauðgreni og síðan sitkagreni í Selskógi og hefur sitkagrenið vaxið mun hraðar. Nokkur sala jólatrjáa hefur verið úr skóginum og umtalsverð grisjun er hafin.
Annað áhugavert í skóginum
Sellækur rennur um skóginn og framhjá tjaldsvæðinu.