-
Í Vaglaskógi(mynd: Esther Ösp Gunnarsdóttir) -
Í Vaglaskógi(mynd: Esther Ösp Gunnarsdóttir) -
Í Vaglaskógi(mynd: Esther Ösp Gunnarsdóttir) -
Í Vaglaskógi(mynd: Esther Ösp Gunnarsdóttir) -
Í Vaglaskógi(mynd: Esther Ösp Gunnarsdóttir) -
Kurl í Vaglaskógi(mynd: Esther Ösp Gunnarsdóttir) -
Næturgestir í Vaglaskógi(mynd: Esther Ösp Gunnarsdóttir) -
Tjaldsvæði í Vaglaskógi(mynd: Esther Ösp Gunnarsdóttir) -
Tjaldsvæði í Vaglaskógi(mynd: Esther Ösp Gunnarsdóttir) -
Starfsstöð Skógræktar ríkisins í Vaglaskógi(mynd: Esther Ösp Gunnarsdóttir) -
Timbur í Vaglaskógi(mynd: Esther Ösp Gunnarsdóttir) -
Timbur í Vaglaskógi(mynd: Esther Ösp Gunnarsdóttir) -
Trjárækt í Vaglaskógi(mynd: Esther Ösp Gunnarsdóttir) -
Trjásafnið í Vaglaskógi(mynd: Esther Ösp Gunnarsdóttir) -
Vaglaskógur(mynd: Esther Ösp Gunnarsdóttir) -
Vaglaskógur(mynd: Esther Ösp Gunnarsdóttir) -
Verkefnið Hringt í skóginn í Vaglaskógi(mynd: Esther Ösp Gunnarsdóttir) -
Grisjað í Vaglaskógi, haust 2009(mynd: Sigurður Skúlason) -
Grisjað í Vaglaskógi, haust 2009(mynd: Sigurður Skúlason) -
Grisjað í Vaglaskógi, haust 2009(mynd: Sigurður Skúlason) -
Grisjað í Vaglaskógi, haust 2009(mynd: Sigurður Skúlason)
Vaglaskógur
Einn fegursti og stórvaxnasti birkiskógur landsins með fjölda útivistarmöguleika.
Yfirlit
Amennt um skóginn
Annar stærsti skógur landsins og einn sá fegursti. Vinsæll til útivistar, merktar gönguleiðir. Á Vöglum er starfsstöð Skógræktar ríkisins og aðsetur skógarvarðarins á Norðurlandi. Starfsemin felst í umhirðu skóglenda Skógræktar ríkisins á Norðurlandi, grisjun, úrvinnslu og sölu afurða.
Staðsetning og aðgengi
Um miðbik Fnjóskadals, austan Fnjóskár er Vaglaskógur. Stutt er til Akureyrar, eða 23 km.
Aðstaða og afþreying
Vaglaskógur er meðal fjölsóttustu skóga á Íslandi. Skógurinn er skipulagður til útivistar með merktum göngustígum, vinsæl tjaldsvæði eru í skóginum og fjöldi sumarhúsa er í nágrenninu.
Í skóginum er skemmtilegt trjásafn með fjölda tegunda.
Margir leggja leið sína í Vaglaskóg til sveppa- eða berjatínslu og jurtaskoðunar. Sveppir gegna veigamiklu hlutverki við ræktun skóga. Kúalubbi myndar svepprót birki og fjalldrapa og hjálpar birkinu að afla sér vatns og steinefna og þiggur í staðinn næringu frá trjánum. Í Vaglaskógi er að finna ýmsa bragðgóða matarsveppi, svo sem kúalubba, kóngsvepp, lerkisvepp, furusvepp og fleiri tegundir. Hrútaber dafna vel á sólríkum og skjólgóðum stöðum eins og í gras- og blómabrekkum í gisnu kjarri eða birkiskógi. Hrútaber er því víða að finna í Vaglaskógi þegar líður á sumarið og sækjast margir gestir skógarins eftir þeim. Úr hrútaberjum má gera saft og sultur.
Saga jarðarinnar
Þegar Skógrækt ríkisins tók formlega til starfa 1. janúar 1908 fékk hún í vöggugjöf Hallormsstaðaskóg, Vaglaskóg og umsjón með smáreitunum á Þingvöllum og Grund í Eyjafirði. Vaglaskógur hafði náð athygli Dananna og var þar búið að reisa litlar girðingar til undirbúnings gróðrarstöðvar svipað og gert var í Mörkinni á Hallormsstað. Strax var hafist handa við að friða skóginn í heild.
Trjárækt í skóginum
Vaglaskógur er að jafnaði beinvaxnari og hávaxnari en aðrir íslenskir birkiskógar. Allt frá upphafi umsjónar Skógræktar ríkisins hefur hann verið mikið nýttur, einkum til eldiviðar og kolagerðar. Þar er enn gert til kola og kolin seld til járn- og gullsmiða.
Meðferðin á skóginum helgast af því að viðhalda honum og felast í stakfellingu, þ.e.a.s. stök tré (yfirleitt þau elstu hverju sinni á hverju svæði) eru felld án þess að í skóginum myndist veruleg rjóður. Trén endurnýja sig síðan með teinungi upp af stúfnum. Við þessa meðferð myndast misaldra skógur sem saman stendur af 2-4 aldursflokkum trjáa eftir því hversu oft felling hefur átt sér stað á hverju svæði. Þessari aðferð hefur nú verið beitt í Vaglaskógi i hart nær 100 ár, sem er lengur en flest birkitré lifa. Gömlu trén sem verið er að fella nú og breyta í arinvið til að hita sumarbústaði landsmanna hófu vöxt eftir svipaða fellingu snemma á 20. öld. Allan þann tíma hefur skógurinn vaxið og dafnað án þess að gestir taki yfirleitt eftir því að kynslóðaskipti urðu á trjám.
Vaglaskógagirðingin hefur verið færð til norðurs út á Hálsmela í tveimur áföngum. Er eldra svæðið óðum að vaxa upp með sjálfsánu birki ásamt gróðursettum lerki- og furureitum en yngra svæðið er Landgræðsluskógasvæði, mest gróðursett með lerki síðan 1990. Með því hefur Vaglaskógur tvöfaldast að flatarmáli og nær nú að þjóðvegi nr. 1 austan Fnjóskár.
Annað áhugavert í skóginum
Bogabrúin yfir Fnjóská er fyrsta steinbrú sinnar tegundar hér á landi. Brúin var hönnuð og byggð árið 1908 af danska fyrirtækinu Christiani & Nielsen og var þá lengsti steinbogi á Norðurlöndum, 54,8 metrar. Brúin var upphaflega aðeins ætluð fyrir ríðandi menn og hestvagna en var notuð fyrir almenna umferð til ársins 1968
en eftir það aðeins ætluð léttri umferð. Brúin var færð í sitt upprunalega horf af Vegagerðinni árið 1993 vegna sérstöðu sinnar og sem minnisvarði gamallar verkmenningar.
Kort af skóginum

Með því að hlaða niður bækling um Vaglaskóg geturðu fræðst miklu meira um skóginn, gönguleiðir og skoðunarstaði, sögu, minjar og fuglalíf, fróðleik um birki, ber og blóm, þjónustu og starfsemi í Vaglaskógi.
- Sækja kort af Vaglaskógi (300 kb)

