Arnardalsstaðaskógur í Fljótsdal
Fáfarinn, náttúrulegur birkiskógur blandaður reynivið.
Yfirlit
Almennt um skóginn
Arnaldsstaðaskógur í Fljótsdal er náttúrulegur birkiskógur blandaður reynivið. Skógurinn hefur verið fáfarinn hingað til, en um er að ræða lítt snortinn náttúruskóg og því er óhætt að hvetja áhugasama til að líta við.
Staðsetning og aðgengi
Arnaldsstaðaskógur er í suðurdal Fljótsdals. Beygt er af vegi 934 í suðvestur, inn á slóða er liggur norðan megin við Kelduá. Ganga þarf upp bratta hlíð til að komast í skóginn.
Aðstaða og afþreying
Ekkert hefur verið gert í þágu ferðalanga í Arnaldsstaðaskógi.
Saga skógarins
Skógurinn var fyrrum beittur en var friðaður þegar hann komst í eigu Skógræktar ríkisins 1977.
Trjárækt í skóginum
Skógurin liggur í 30-300 m.y.s. í óvenjumiklum bratta á svæði skriðufalla. Meðalhæð birkis yfir 5 m og hæstu tré eru um 10 m há. Ekkert hefur verið gróðursett í skóginn.
Annað áhugavert
Botngróður er blanda af gras- og blómlendi, geithvönn er víða og óvenjumikil. Víða er nærlandslag allhrikalegt í bröttum skriðum.

_b.jpg)
_b.jpg)
