Skógræktarverkefni

Landshlutaverkefni

Markmiðið með landshlutaverkefnum í skógrækt er að gefa sem flestum tækifæri til að taka þátt í fjölnytjaþróun og viðhaldi byggðar í öllum landshlutum, jafnframt því að að græða og bæta landið fyrir komandi kynslóðir. Landshlutaverkefnin skapa grundvöll fyrir marga til að halda áfram búsetu á jörðum sínum og fyrir aðra skapa þau nýtingarmöguleika á jörðum sem áður voru lítið nýttar.

Landgræðsluskógar

Landgræðsluskógar er skógræktar- og uppgræðsluverkefni á vegum skógræktarfélaganna í samstarfi við Landgræðslu ríkisins, Skógrækt ríkisins og ráðuneytið. Markmiðið er að sameina aðgerðir landgræðslu og skógræktar til að klæða rýr og illa gróin svæði skógi.

Hekluskógar

Hugmyndin með Hekluskógaverkefninu er að endurheimta birkiskóga og víðikjarr í nágrenni Heklu. Sá gróður myndi minnka vikurfok í kjölfar gjóskugosa úr eldfjallinu og verja þar með land í nágrenni fjallsins fyrir jarðvegseyðingu. 


 
Þetta vefsvæði byggir á Eplica