Skógræktarfélög
Skógræktarfélag Íslands er landsamband skógræktarfélaganna. Það stundar öfluga fræðslu- og útgáfustarfsemi, og gefur m.a. árlega út tímaritið Skógræktarritið. Einnig veitir félagið ýmiss ráð varðandi skógrækt og hefur það að markmiði að vinna að framgangi skógræktar og trjáræktar í landinu og stuðla að hvers konar umhverfisbótum.
Margir garð-, sumarbústaðar- og jarðeigendur stunda skógrækt án sérstakrar félagsþátttöku en flestir, rúmlega 7.000 manns, eru meðlimir þeirra ríflega sextíu skógræktarfélaga sem starfrækt eru víða um land.
Úr 3. gr. Laga Skógræktarfélags Íslands.
Skógræktarfélag Íslands vill efla áhuga almennings á skógrækt, m.a. með því að kynna skóglendi félaganna og hvetja almenning til þess að nýta þá möguleika sem skógarsvæðin bjóða upp á. Þá vill félagið vill stuðla að því að sem flestir gangi í skógræktarfélögin.Félagsaðild opnar leiðir til þátttöku í þróttmiklu starfi og félagsmenn njóta margvíslegra hlunninda; félagsmenn fá félagskírteini með afsláttarkjörum valdra aðila, fréttablaðið Laufblaðið og fræðsluritið Frækornið eru innifalinn í félagsaðild o.fl.
Um allt land eru starfrækt rúmlega sextíu skógræktarfélög og má nálgast frekari upplýsingar um hvert þeirra hér að neðan.

