Skógfræðingafélag Íslands

Um félagið

Skógfræðingafélag Íslands var stofnað 12. mars 2004. Í stjórn félagsins eru Björgvin Örn Eggertsson, formaður (bjorgvin(hjá)lbhi.is), Bjarni Diðrik Sigurðsson, ritari og Harpa Dís Harðardóttir, gjaldkeri. Meðlimir félagsins eru 22 talsins.

Markmið

Að efla samheldni skógfræðinga í því skyni að bæta aðstöðu þeirra faglega og félagslega. Unnið er að markmiðum félagsins bæði beint af því sjálfu en einnig með þátttöku í Félagi íslenskra náttúrufræðinga og/eða öðrum samtökum. Félagið mun leggja áherslu á að félagsmönnum sé búin viðunandi starfsaðstaða, sérstaklega þegar ný störf koma til. Félagið mun leitast við að aðstoða þá sem hafa áhuga á því að mennta sig í skógfræðitengdu námi.



 
Þetta vefsvæði byggir á Eplica