Íslensk skógarúttekt
Í hnotskurn
Verkefnið íslensk skógarúttekt (ÍSÚ) sér um að halda til haga og uppfæra upplýsingar á landsvísu um skóglendi Íslands og spá fyrir um þróun þess til framtíðar. Þessar upplýsingar eru margvíslegar en þar er helst að nefna upplýsingar um flatarmál, viðarmagn og viðarvöxt. Í seinni tíð hafa orðið æ mikilvægari upplýsingar um kolefnisforða og kolefnisbindingu eða –losun og líffræðilegan fjölbreytileika skóglendanna.
Nánari upplýsingar
Verkefnisstjóri: Arnór Snorrason
Aðrir starfsmenn: Björn Traustason
Verkefnið er með viðarmeiri verkefnum á Mógilsá og samanstendur einnig af nokkrum undirverkefnum. Meginmarkmið þess er að áætla breytingar á kolefnisforða íslenskra skóglenda í samræmi við alþjóðlegar kröfur sem íslensk stjórnvöld hafa undirgengist. Ýmsum öðrum upplýsingum er safnað sem lýsa ástandi skóglenda á Íslandi og hægt er að nota við greiningu á stöðu skógræktar og skógverndar. Unnið er að landsúttekt á skóglendum Íslands bæði ræktuðum og náttúrulegum. Beitt er svipuðum aðferðum og hjá sambærilegum verkefnum erlendis. Kortaupplýsingum er safnað með fjarkönnun og upplýsingum frá skógræktendum. Öðrum upplýsingum er safnað með vettvangsmælingum á kerfisúrtaki í öllum skógum landsins, á um 1.000 föstum mæliflötum. Helstu niðurstöður eru: Kolefnisforði, kolefnisbinding, lífmassaforði og lífmassavöxtur, viðarforði og viðarvöxtur; tegundir skóglenda, aldurs- og trjátegundaskipting skóglenda, eignarhald skóglenda, endurnýjum skóglenda, breytingar á flatamáli skóglenda, vöktun á lifun í gróðursetningum svo að eitthvað sé nefnt. Vettvangsmælingar hófust sumarið 2005 á 1/5 hluta mæliflata. Endurmæling á sömu mæliflötum fer fram á 5 ára fresti.Fyrstu niðurstöður á vöktun á lifun í gróðursetningum voru kynntar vorið 2007. Vorið 2008 verður birt fyrsta áætlun um kolefnisbindingu skóglenda á Íslandi út frá þessu gagnasafni. Undirverkefni eru: ÍSÚ Landsúttekt sem er framkvæmdarverkefni við vettvangsmælingar á mæliflataneti ÍSÚ á landsvísu. ÍSÚ Birkiúttekt sem er verkefni þar sem verið er að endurbæta birkiskógagögn sem safnað var í birkiúttektum á 8. og 9. áratug síðustu aldar.
Sjá einnig Ársrit Skógræktar ríkisins 2004 á bls. 36-42.
Undirverkefni Ísú eru mörg en helst er þar að nefna:
1. Landsúttektir
Einn meginþátturinn ÍSÚ er að gera vettvangsúttektir á skógunum á landsvísu sem við köllum landsskógarúttektir. Slíkar vettvangsúttektir fóru í fyrsta sinn fram sumarið 2005 og verður búið að mæla alla mælifleti árið 2009. Árið 2010 hefst endurmæling á mæliflötum. Sjá Ársrit Skógræktar ríkisins 2005 á bls. 39-42.
2. Birkiskógar Íslands
ÍSÚ gerir einnig náttúrulegum skógum og kjarri skil. Er þar bæði verið að koma á framfæri upplýsingum úr eldri birkiskógakönnunum og úttektum sem gerðar eru í landsúttektum ÍSÚ.
Sjá grein í Ráðstefnuriti Fræðaþings Landbúnaðarins 2007. bls. 572-574.
3. Langtímaspár
Út frá þeim gögnum sem safnað er í úttektum og öðrum upplýsingum eru gerðar spár til lengri og skemmri tíma um breytingar á skóglendum landsins m.a. viðar/kolefnimagni og viðar/kolefnisvexti.
Sjá grein í Ráðstefnuriti Fræðaþings Landbúnaðarins 2007. bls. 522-527 og í Skógræktarritinu 2006 2.tbl. bls. 58-64.

