Rannsóknafréttir
frett_0804201_3

08.04.2010

Styrkveitingar: erfðanefndar landbúnaðarins

Meginhlutverk erfðanefndar landbúnaðarins er að vinna að varðveislu og sjálfbærri nýtingu erfðaauðlinda í landbúnaði. Í því skyni hefur nefndin ákveðið að verja fjármunum í að styrkja einstök afmörkuð verkefni sem falla að því hlutverki. Vísað er til stefnumörkunaráætlunar erfðanefndar varðandi nánari áherslur nefndarinnar, sjá vefsíðu nefndarinnar. Lögð er áhersla á að styrkja verkefni á eftirfarandi sviðum:

  • rannsóknir er lúta að varðveislu og viðhaldi á erfðaauðlindum í landbúnaði.
  • lokaverkefni til prófs á háskólastigi er tengjast varðveislu og/eða nýtingu á erfðaauðlindum í landbúnaði.
  • aðgerðir sem stuðla að sjálfbærri varðveislu og/eða nýtingu erfðaauðlinda í landbúnaði.
  • kynning og fræðsla fyrir almenning um erfðaauðlindir í landbúnaði og gildi þeirra.

Um styrki þessa geta sótt bæði einstaklingar eða félagasamtök sem hafa það að markmiði að stuðla að verndun og sjálfbærri nýtingu innlendra erfðaauðlinda í íslenskum landbúnaði. Að jafnaði verða veittir styrkir á bilinu kr. 200-700 þús. Sérstök eyðublöð má finna á heimasíðu erfðanefndar.  Umsóknum skal skilað til Margrétar Ásbjarnardóttur, Landbúnaðarháskóla Íslands, Hvanneyri, 311 Borgarnes (margretga(hjá)lbhi.is) fyrir 30. apríl n.k.

 


 
Þetta vefsvæði byggir á Eplica