Áhrif gjóskufalls á birkiskóga við Heklurætur
Rannsóknastöð skógræktar á Mógilsá hefur hafið rannsóknir á áhrifum gjóskufalls á birkiskóga við Heklurætur. Borkjörnum hefur verið safnað út eldri birkitrjám frá skógum í nágreni Heklu. Kjörnum hefur þegar verið safnað úr trjám í Búrfellsskógi og Hraunteig. Markmiðið rannsóknarinnar er m.a. að kanna hvort gjóskufall í Heklugosunum 1947 og 1970 hafi haft einhver áhrif á vöxt trjánna. Elstu trén í skógunum eru yfir 100 ára, þannig að árhringirnir munu gefa okkur upplýsingar um vöxt og viðgang skógana í mera en 100 ár. Vænta má að niðurstöður rannsóknarinnar liggi fyrir í lok árs.
Verkefnið tengist umfangsmiklu rannsóknarverkefni sem nefnist Kolbjörk. Í Kolbjarkarverkefninu eru rannsakaðar þær umhverfisbreytingar sem verða í kjölfar endurheimtar birkiskóga í nágrenni við Heklu. Vistkerfi við endurheimt birkiskóga á mismunandi aldri eru borin saman við gamla birkiskóga og örfoka land. Þátttakendur eru meðal annars LBHÍ, Landgræðslan og Skógrækt ríkisins. Kolbjarkarverkefnið fær meðal annars styrki frá Orkuveitu Reykjavíkur.


