Víxlun alaskaaspar og sléttuaspar lofar góðu
Vorið 2007 var ákveðið að hefja framleiðslu á tegundablendingum af ösp. Þá var næstum lokið útplöntun afkvæma úr klónavíxlunum á alaskaösp í tilraunir víðs vegar um landið. Forvitnilegt var því að taka næsta skref, sem sé að víxla alaskaösp við aðra aspartegund. Fyrir valinu varð sléttuösp (Populus deltoides). Þetta er amerísk tegund eins og alaskaöspin, en hefur miklu stærra útbreiðslusvæði og jafnframt suðlægara. Blendingar þessara tegunda eru mikið notaðir í asparrækt víða um heim. Sléttuöspin hefur aldrei verið reynd hér á landi svo vitað sé, og því var nokkurt vafamál hvernig blendingar af henni og alaskaöspinni mundu standa sig. Á þetta er nú komin nokkur reynsla og hún lofar góðu. Af þeim 376 afkvæmum sem fengust úr víxlununum hafa nú 65 klónar verið valdir til áframhaldandi skoðunar. Hæstu trén á Mógilsá sem plantað var út 2007 eru nú um og yfir 2 metrar með stofnþvermál í 50 sm hæð 12 til 18 mm. Græðlingar sem plantað var út í fyrra hafa náð allt að 1,5 metra hæð og er stofnþvermál í hnéhæð 9-11 mm. Til samanburðar má nefna að alaskaösp sem plantað var á sama stað og tíma hefur náð 1 m hæð og hefur stofnþvermál 4-5 mm. Stór hluti klónanna er algjörlega laus við ryð og margir hafa verið lausir við toppkal. Það er því óhætt að segja að árangur þessara kynbóta hefur farið fram úr vonum.
Meðfylgjandi mynd sýnir asparklónasafnið á Mógilsá.

Mynd og texti: Halldór Sverrisson, sérfræðingur hjá Rannsóknastöð Skógræktar ríkisins á Mógilsá.
