Ungar skógarplöntur. Ljósmynd: Pétur Halldórsson
Ungar skógarplöntur. Ljósmynd: Pétur Halldórsson

Ingólfur Guðnason skrifar í Bændablaðið um hagnýtt og áhugavert nám sem er í boði við Garðyrkjuskóla LbhÍ á Reykjum í Ölfusi. Þetta er fjögurra anna bóklegt og verklegt nám í framleiðslu garð- og skógarplantna. Sækja má um þetta nám til 15. júní en það hefst í lok ágúst.

Ingólfur skrifar:

Garð- og skógarplöntur eru fjölbreyttur hópur plantna sem landsmenn nota til að prýða garða, opin svæði og lóðir við stofnanir og fyrirtæki, sem og trjáplönturnar sem notaðar eru til að rækta skóga framtíðar. Til að ná árangri Hagnýtt og áhugaskóga framtíðar.

Til að ná árangri í framleiðslu þessara tegunda þarf sérþekk­ingu sem ekki er á færi leikmanna og fram­leiðslan gerir auk þess sérstakar kröfur um ræktunaraðstöðu og tækni. Ræktun þessa fjölbreytta gróðurs er kennd á námsleið um garð-­ og skógarplöntufram­leiðslu á Garðyrkjuskóla LBHÍ á Reykjum í Ölfusi. Þar starfa sér­fræðingar með áratuga reynslu af framleiðslu og notkun þeirra.

Fjölbreytt og skemmtilegt nám

Á námsleiðinni Garð-­ og skógarplöntuframleiðsla eru kennd grunnfög garðyrkjunnar, til að mynda grasafræði, plöntu­lífeðlisfræði, almenn ylræktun og jarðvegs-­ og áburðarfræði, en einnig sérfög í framleiðslu garð­- og skógarplantna. Sérstaklega er kennd plöntuþekking og fram­leiðsluferli hinna ýmsu tegunda. Áherslur í námi á Reykjum tengjast umhverfisvernd og sjálf­bærni og er þar m.a. stuðst við gildi heimsmarkmiða Sameinuðu þjóðanna og tekið mið af sér­stöðu Íslands varðandi gróður­far, verndun náttúrugæða og möguleika í vali á hinum ýmsu tegundum. Vistfræði er kynnt og einnig markaðsfræði og skipulag og stofnun garðyrkju­stöðva. Sérstakur áfangi um ræktun ávaxtatrjáa er kenndur og sömuleiðis torf­ og grjóthleðslur, trjáklippingar og trjáfellingar. Útskrifaðir nemar hafa fengið góða innsýn í skógrækt, land­notkun, verndun lífríkis og garð­yrkju í sátt við umhverfið.

Starfsvettvangur víða í samfélaginu

Námið á Reykjum er blanda bók­náms og verknáms. Bóknámið skiptist í 4 annir en verknám fer fram á viðurkenndum verk­námsstöðum. Starfsvettvangur útskrifaðra nemenda er garð-­ og skógarplöntustöðvar, plöntu­ræktun, sala og ráðgjöf til við­skiptavina auk þess að aðstoða við tilraunir og rannsóknir. Fjarnám er í boði á þessari námsbraut. Þá tekur námið að jafnaði 8 annir, auk verknáms. Útskrifaðir nemar eru eft­irsóttir sem verkstjórar og ræktunarstjórar og starfa auk plöntuframleiðslu við garðyrkju­störf hjá bæjar-­ og sveitarfélög­um. Námið veitir góðan grunn að framhaldsnámi erlendis. Einnig eru möguleikar í stofnun nýrra fyrirtækja í framleiðslu garð-­ og skógarplantna. Kennslan hefst í ágústlok 2020 og er hægt er að sækja um nám á heimasíðu Landbúnaðarháskóla Íslands: lbhi.is. Kennslan fer fram á Garðyrkjuskóla LBHÍ á Reykjum í Ölfusi. Umsóknarfrestur er til 15. júní.

Sett á skogur.is:  Pétur Halldórsson