Í nóvembermánuði má byrja að höggva furur sem selja á sem jólatré þetta árið en rétt er að bíða um sinn með grenið. Framleiðendum ber að sjá til þess að öll tré sem send eru á markað uppfylli gæðakröfur.

Dæmi um jólatré með vel hreinsaðan legg tilbúin til að klæðast í net og senda eða selja. Mynd: Else Møller.Að höggva jólatré fyrir sölu

Í nóvembermánuði má byrja að höggva furur sem selja á sem jólatré þetta árið en rétt er að bíða um sinn með grenið.

Ekki er alveg víst að þau tré sem merkt voru fyrr um haustið séu enn jafngóð söluvara og þá virtist. Þess vegna þarf að meta þau aftur um leið og höggvið er. Óráðlegt er að byrja að höggva áður en ljóst er orðið hversu mikið muni seljast.

Hér fyrir neðan eru atriði sem vert er að hafa í huga þegar komið er að því að höggva og selja trén.

 

  • Það er verkefni framleiðanda að sjá til að öll jólatré sem koma á markaði uppfylli ákveðnar kröfur.
  • Mikilvægt að tryggja að merkt jólatré hafi ekki misst barr, breytt um lit eða orðið fyrir  hnjaski síðan þau voru merkt.
  • Hægt er að höggva furu í nóvember en greni má ekki höggva fyrir en komið er fram í desember.
  • Best er að láta trén standa á rót eins lengi og hægt er, helst þangað til búið er að selja þau.
  • Ákveða skal hvernig skuli ganga frá trjánum í samráði við þann sem hyggst sjá um sölu þeirra.
  • Fjarlægja allt efni sem notað hefur verið til að leiðrétta og bæta form trjáa.
  • Mikilvægt er að höggva tréð eins nálægt jörð og hægt er og að hafa skurðflötinn eins hornréttan og kostur er.
  • Hæð trésins er mæld frá skurðfleti upp að grein á efsta greinakransinum.
  • Hreinsa neðstu greinarnar á leggnum þannig að hann sé u.þ.b 20 cm langur. Leggurinn á að vera beinn, ef hann er ekki beinn þarf að laga hann til (sjá mynd).
  • Hreinsa skal af trénu leifar af grasi, illgresi og öðru slíku. Ekki má vera mold á trjánum.
  • Ef trénu eru pakkað í net má ekki vera rusl með (blöð, gras eða slíkt).
  • Ef trjánum er pakkað á vörubretti er mikilvægt að allir leggir vísir í sömu átt svo auðvelt sé að telja trén.
  • Mikilvægt er að geyma trén sem búið er að höggva skjólgóðum stað utan dyra þangað til þau verða flutt. Ef trjánum er ekki pakkað í net er best að láta þau standa á leggnum, helst á rökum stað, t.d. á grasi.
  • Muna að fara vel með trén svo að þau skemmist ekki.
  • Muna að beita líkamanum rétt við verkin, hlífa baki og herðum við óeðlilegu álagi og huga að vinnuaðstöðu, tækjum og búnaði.